eurodesk_banner_a_heimasidu

Tækifæri fyrir ungt fólk í Evrópu
18.5 2012

Hvað er EVRÓVÍSIR?
 
EVRÓVÍSIR er íslenska heitið yfir EURODESK og er evrópsk upplýsingaveita fyrir ungt fólk 13-30 ára.
 
Ef þig langar til að fara til Evrópu og kynnast nýju fólki í nýju landi og gera eitthvað nýtt eða öðruvísi hafðu þá samband við evrovisir(hjá)evrovisir.is
 
Á evrovisir.is finnur þú eftirfarandi upplýsingar:


Stefnumót við heiminn

Margir hafa áhuga á því að víkka sjóndeildarhringinn og prufa eitthvað nýtt með því að dvelja um nokkurra mánaða eða ára skeið í útlöndum við nám eða störf. Slík dvöl getur verið ákaflega jákvæð og gefið fólki veganesti sem endist því allt lífið. Margar spurningar vakna þegar hugmyndin um að flytjast á milli landa er tekin til alvarlegrar athugunar. Er ég tilbúin/n? Hvert á ég að fara? Hvernig á ég að undirbúa mig? Hvað þarf ég að taka með mér? Hvernig á ég að finna húsnæði, vinnu, skóla, vini ...? Ef ég fer, hvernig get ég fengið það mesta út úr dvölinni?

Bæklingur þessi er ætlaður öllum þeim sem hugleiða hvort dvöl erlendis gæti verið einmitt það sem þeir vilja eða þurfa en eru samt ekki alveg vissir.

stefnumot_vid_heiminn 
Hægt er að fá send prentuð eintök af bæklingum - hafið samband við evrovisir@evrovisir.is





Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is