Næsti umsóknarfrestur er
1. september
2010
Vegna verkefna sem
hefjast:
1. desember 2010 -
30. apríl 2011
Ef upp koma einhver vandamál í leit að samstarfsaðilum hikið ekki við að hafa samband við okkur hjá Evrópu unga fólksins.
Youth for Europe Alþjóðlegur gagnabanki þar sem hægt er að fletta upp bæði samtökum og verkefnum eftir löndum.
Fjölþjóðlegur "samtaka-banki" Hér er hægt að finna fjölda samtaka í Evrópu og nágrannalöndunum og skrá ykkar samstök ef þið eruð í leit að samstarfsaðilum.
Partner Search Forum Öflugur og virkur vefur þar sem hægt er að finna fjölda samtaka sem vantar samstarfsaðila í áhugaverð verkefni og auðvelt er að setja inn sín eigin verkefni fyrir aðra til að sjá.
Euromed Platform Hér er finna lista yfir fjölda meira en 2000 samtök í Evrópu og á meðal samstarfslanda við miðjarðarhafið (Marakó, Líbanon, Palestína o.fl). Hægt er að fletta samtökum upp eftir löndum og áherslusviðum samtakanna.
Youth Networks Þetta er síða þar sem samtök og einstaklingar geta skráð sig inn ef þau vilja taka þátt í sjálfboðaliðaverkefnum. Skráning samtaka tekur nokkra daga, en að því loknu er veittur aðgangur að gagnagrunn með fjölda verkefna og samtaka. Einstaklingar sem hafa áhuga á sjálfboðastarfi þurfa að skrá sig í gegnum sendisamtök sem finna má neðst á síðunni.
Salto Youth - EECA RC Hér er hægt að fletta upp samtökum Evrópu og í samstarfslöndum áætlunarinnar í A-Evrópu og Kákasus (Aserbaídsjan, Georgía, Rússland o.fl). Best er að leita hér í "advanced search".
Salto Youth - South East Europe Hér er hægt að fletta upp samtökum í samstarfslöndum í Suðaustur-Evrópu (Serbíu, Króatíu, Kósóvó, Albaníu o.fl)
Salto - Find Partners Hér er hægt að finna nokkur verkefni í flokki 1.2 (frumkvöðlaverkefni) og flokki 1.3 (lýðræðisverkefni) sem eru í leit að samstarfshópum.
Þýskur gagnabanki Hér getið þið bæði leitað meðal verkefna og sett ykkar eigið verkefni inn.
Spænskur gagnabanki Hér er hægt að fletta upp eftir löndum og þemum meðal hópa í samstarfsaðila leit.
Tyrknesk verkefni Langar ykkur að starfa með hóp í Tyrklandi? Hér er að finna lista með fjölda Tyrkenskra hópa í leit að samstarfsaðilum.
