Næsti umsóknarfrestur er

1. september
2010

Vegna verkefna sem
hefjast:
1. desember 2010 -
30. apríl 2011



Erlendir aðilar í leit að samstarfsaðilum
8.9 2010

Hér gefur að líta hópa í Evrópu sem eru að leita eftir samstarfi við hópa á Íslandi. Ef þið sjáið hóp sem þið viljið eiga í samstarfi við ekki hika við að senda póst á tengiliðinn sem gefinn er upp til að koma á samskiptum og móta verkefni með hópnum.


Samstarf við nágrannalöng áætlunarinnar - Þjálfun og samstarf - Flokkur 3.1

Leitað er eftir þátttakendum/samstarfsaðilum í námskeið sem miðar að því að nota tónlist og leiklist til að vinna með félagslega einangruðum ungmennum sem búa í borgum. -


Lýðræðisverkefni - Flokkur 1.3

Hópur 16 ungmenna á aldrinum 16-25 ára frá Ítalíu er að leita eftir samstarfsaðilum í verkefnið "breaking the glass ceiling, building more than a roof" sem snýst um varnir gegn kynbundnu ofbeldi og að skoða miðsmunandi veruleika í þeim málum innan Evrópu - Skoða nánar 


Frumkvæði ungs fólks - Flokkur 1.2

Hópur 12 ungmenna á aldrinum 15-25 ára frá Ítalíu er að leita eftir samstarfsaðilum í verkefni sem snýst um að hvetja nemendur sem líður illa í skóla og eru frá mismunandi löndum í evrópu  til að skipuleggja "local tactical simulated softair combats" og hittast síðan í "final combat" á Ítalíu - Skoða nánar 


Ungmennaskipti - Flokkur 1.1

Hópur 20 ungmenna á aldrinum 18-30 ára frá Andalúsíu á Spáni vilja taka á móti hópum í fjölþjóðlegt verkefni tengt íþróttum og útivist - Skoða nánar

Hópur 6 ungmenna á aldrinum 13-17 ára frá Elche á Spáni leitar eftir samstarfsaðila til að vinna verkefni tengt menningu og listum - Skoða nánar

Hópur 5 ungmenna á aldrinum 18-25 ára frá Bellavista í Sevilla á Spáni leitar eftir að taka á móti samstarfsaðilum í fjölþjóðlegt verkefni tengt menningu og listum - Skoða nánar

Hópur 10 ungmenna á aldrinum 15-17 ára leitar eftir að taka á móti sambærilegum hóp í íþróttatengt verkefni. Hópurinn er Marinaleda í Sevilla á Spáni -  Skoða nánar 

Hópur 30 ungmenna á aldrinum 18-25 ára frá Vitoria-gasteiz á Spáni óskar eftir samstarfsaðila - skoða nánar

Hópurinn Nowa Fala frá Litháen er að leita eftir samstarfi við hóp ungs fólks á aldrinum 15-30 ára - Skoða nánar

Ítalskur hópur vill taka á móti hópum af 4-6 ungmennum á aldrinum 15-20 ára í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Þema verkefnisins er handverk eftir fornum ítölskum hefðum ásamt goðafræðilegri sögu, hópurinn ætlar að sækja um 1.júní 2010 - Skoða nánar  

Hópur ungmenna frá Granada á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Þau vilja kynnast týpiskri tónlist og dönsum frá löndum samstarfaðila sinna - Skoða nánar

Hópurinn Aventureros frá Madríd á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Ungmennaskiptin eiga að fara fram á Spáni og á hver hópur að samanstanda af um 12 þátttakendum á aldrinum 18-30 ára - Skoða nánar 

Hópur ungmenna á aldrnum 18-30 ára frá Andalúsíu á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti. Hópurinn vill sækja samstarfshóp sinn heim og vinna verkefni í tengslum við uppbyggingu dreifbýlis, landbúnað og æskulýðsmál - Skoða nánar

Hópur 17 ungmenna á aldrinum 13-17 ára frá Club de Lectura Comelibros í Andalúsíu á Spáni leitar eftir að taka á móti svipuðum hóp í tvíþjóða ungmennaskipti með þemanu listir og menning - Skoða nánar 

Hópur frá Madrid á Spáni leitar eftir því að taka á móti hópum í fjölþjóðleg ungmennaskipti - Skoða nánar

Hópur 10 ungs fólks á aldrinum 15-18 ára frá Barcelona á Spáni leitar eftir því að sækja annan hóp heim í tvíþjóða ungmennaskiptum - Skoða nánar 

Grupo de Jóvenes de Guía de Isora frá Tenerife eyju við Spán leitar eftir því að taka á móti og senda hóp 15 ungmenna á aldrinum 15-20 ára. Þau vilja kynnast lífi og menningu annra Evrópuþjóða og eru sérstaklega spennt fyrir því að vinna með einhverjum öðrum sem búa á eyju eins og þau - Skoða nánar

Makedonca proyect frá Baza á Spáni vill taka á móti hóp 19 ungmenna á aldrinum 16-18 ára í tvíþjóða ungennaskipti með þema um listir og menningu - Skoða nánar

Councl of Pilas frá Andalúsíu á Spáni leitast eftir að taka á móti hópi 14 ungmenna á aldrinum 13-17 ára í tvíþjóða ungmennaskipti - Skoða nánar

Hópurinn Ayuntamiento de Torredelcampo frá Andalúsíu á Spáni leitar að samstafsaðilum til að taka á móti 20 manna hóp ungmenna á aldrinum 18-30 ára og á þema verkefnisins að vera listir og menning - Skoða nánar 

Hópurinn Mancomunidad intermunicipal de la Vera frá Spáni vill taka á móti 15 ungmennum á aldrinum 16-25 ára í verkefni sem snýr að menningarmismun, siðvenjum, útivist og umhverfi - Skoða nánar

Hópur frá Rúmeníu leitar eftir samtarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Gert er ráð fyrir að 4 lönd taki þátt í ungmennaskiptunum og að hver hópur samanstandi af 12 ungmennum á aldrinum 15-21 og 2 hópstjórum. Þema verkefnisins eru hópíþróttir sem heilsusamlegur lífstíll og skapandi og listræn ljósmyndun, sækja á um verkefnið 1. júní 2010 - Skoða nánar 

Hópur 15 stúlkna á aldrinum 13-16 ára frá Finnlandi leitar eftir samstarfsaðila í tvíþjóða ungmennaskipti. Hópurinn leitar eftir einhverjum til að taka á móti sér, og hafa þær sérstakan áhuga á að koma til Íslands.  Þær gera ráð fyrir því að ungmennaskiptin fari fram suamrið 2011 og hyggjast sækja um 1. nóv 2010 eða 1. feb. 2011 - Skoða nánar   

Hópur frá Tékklandi vill taka á móti hópum ungmenna á aldrinum 17-22 ára. Hópurinn á að samanstanda af 4 ungmennum, tveimur strákum og tveimur stelpum, ásamt hópstjóra. Verkefnið á að fara fram í september og á að sækja um styrk 1. júní 2010 - skoða nánar 

Hópurinn Homoecos frá Lettlandi leitar eftir samstarfsaðilum. Hópurinn samanstendur af ungmennum á aldrinum 16-22 ára og hafa þau áhuga á umhverfismálum, náttúrunni, sjálfbærum lifnaðarháttum, vistvænum orkugjöfum o.fl. - Skoða nánar 

Hópur skáta á aldrinum 15-25 ára frá Tyrklandi leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðlegt ungmennaskiptaverkefni. Verkefnið á að snúa að menningu og samvinnu fólks með mismunandi menningarlegan bakrunn - Skoða nánar

Hópur frá Marseille í Frakklandi sem samanstendur af ungmennum á aldrinum 18-25 leitar eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti. Verkefnið á að vera í tengslum við uppruna kvikmynda, Buster Keaton og stuttmyndir - Skoða meira

Óformlegur hópurinn Young Game Keepers frá Tékklandi leitar að samstarfsaðilum. Hópurinn samanstendur af 10-15 ungmennum á aldrinum 15-22 ára sem hafa áhuga á náttúrunni, veiðidýrum og veiðum - Skoða nánar 

Hópur 25-30 ungmenna frá litlum sveitarfélögum í Finnlandi leita að samstarfsaðilum í verkefni tengt umhverfismennt gegnum íþróttir, útivist, listir og menningu - Skoða nánar

Hópur 6 ungmenna á aldrinum 13-16ára frá Belgíu leitar eftir samstarfsaðilum í verkefni sem snýr að fjölbreytileika menningar og mannlífs í Evrópu - Skoða nánar

Hópur 5 ungmenna á aldrinum 17-22 ára frá Belgíu eru að leita að samstarfsaðilum til að taka þátt í fjölþjóðlegum ungmennaskiptum með umhverfisþema - Skoða nánar 

Hópur 8 ungmenna á aldrinum 14-17ára úr dreifbýli í Frakklandi leitar samstarfsaðlum til að taka þátt í vistfræðilegu eða menningarlegu verkefni - Skoða nánar

Hópur 15 ungmenna á aldrinum 18-25 ára frá Frakklandi leitar eftir samstarfsaðilum. Hópurinn hefur sérstakan áhuga á sjálfbærri þróun, s.s. endurvinnslu og endurnýjanlegri orku - skoða nánar

Hópur 6-10 ungmenna á aldrinum 14-18 ára frá Lettlandi leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Vilja þeir að þema verkefnisins verði í kringum fótbolta, heilsusamlegt líferni og frístundir - Skoða nánar

Hópurinn Euroclub frá Riga í Lettlandi leitar eftir samstarfsaðilum. Hópurinn samanstendur af 15 nemum á aldrinum 14-18 ára - Skoða nánar 

Hópur ungmenna á aldrinum 15-20 ára frá Noregi leitar eftir samstarfsaðilum. Þau hafa brennandi áhuga á margskonar útivist og eru að leita að samtarfshópum með 8-15 þátttakendum. - Skoða nánar

Stuttmyndaklúbbur frá Noregi leitar eftir samstarfsaðilum. Hópurinn samanstendur af 18 ungmennum á aldrinum 19-22 ára. - Skoða nánar 

Hópur samsettur úr ungmennum á aldrinum 13-25 ára frá fjórum sveitarfélögum á ítölsku eyjunni Sardiníu leita eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti. Þema ungmennaskiptanna á að vera í tengslum við menningu, listir og mennigarhefðir - Skoða nánar

Hópur 10 skáta á aldrinum 17-21 árs frá Madrid á Spáni leitar eftir samstarfshóp. Hópurinn hyggst sækja um tvíþjóða ungmennaskipti 1. apríl og er bæði opin fyrir því að senda og taka á móti hóp - Verkefnalýsing - Skoða nánar

Hópurinn Ciudado que corto frá Madríd á spáni leitar eftir samstarfsaðilum. Hópurinn samanstendur af 10 ungmennum á aldrinum 18-25 ára sem hafa áhuga á listum sem snerta sjón og heyrn (audiovisual creation) - Skoða nánar

Hópur 19 ungmenna á öllum aldri frá Ítalíu leitar eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti sem munu eiga sér stað á Ítalíu. Þema verkefnisins er virk þátttaka ungmenna og er einhver hluti unga fólksins atvinnulaus eða býr við bág kjör - Skoða nánar

Hópurinn Sustainable life frá Litháen samanstendur af hópi ungmenna á aldrinum 13-16 ára og er að leita að samstarfsaðilum frá fimm löndum. Þema verkefnisins sem hópurinn hefur í huga er umhverfismál og hvernig hægt er að lifa á sjálfbærann hátt. Þau vilja finna hópa til að vinna með sér í síðasta lagi 15. mars en ungmennaskiptin eiga að fara fram í ágúst - Skoða nánar 

Hópur 15 ungmenna frá ungmennahúsi í Póllandi leitar samstarfsaðila. Hópurinn hefur þónokkra reynslu af verkefnum innan Evópu unga fólkins en þema þessa verkefnis vill hann móta um þemun íþróttir, heilsa, menning og útivist - Skoða nánar

Hópur 20 ungmenna frá Madríd á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum. Þeir eru að leita eftir tvíþjóða ungmennsaktiptum næsta sumar og eru opnir fyrir því að taka á móti hóp eða senda sinn hóp - Skoða nánar 

Útivistarhópur frá Austurríki óskar eftir samstarfsaðilum. Þá þyrstir í útvist og ævintýr, vilja helst halda til í tjaldbúðum án nútíma þæginda og fara á Kanó eða Kajak og fleira skemmtilegt. Í hópnum eru ungmenni á aldrinum 16-20 - Skoða nánar 

Hópur frá samtökunum Open Yotth í Vidin í Búlgaríu er að leita að samstarfsaðila í fjölþjóðlegt ungmennaskiptaverkefni með þemanu útivist og Íþróttir og hvernig megi nota þá þætti til að deila menningu sinni með örðum. Þeir leita eftir hóp 4 ungmenna á aldrinum 15-17 ára en stefnt er að því að hópar frá 6 löndum vinni verkefnið saman - Skoða nánar

Annar hópur frá samtökunum Open Youth í Vidin í Búlgaríu er að leita að samstarfsaðila í fjölþjóðlegt ungmennaskiptaverkefni með það fyrir augum að skoða hvernig vistfræðileg málefni eru skoðuð í mismunandi samfélögum. Þeir leita eftir hóp 4 ungmenna á aldrinum 18-25 ára en stefnt er að því að hópar frá 6 löndum vinni verkefnið saman - skoða nánar

Hópur frá Noeltan Institute sem árlega skipuleggur Potenza international film festival á Ítalíu leitar eftir hóp til að taka þátt í ungmennaskiptum þar sem þemað er kvikmyndagerð. Ungmennaskiptin munu miða að því að hver þátttakandi vinni að gerð stuttmyndar sem síðan verður sýnd á kvikmyndahátíðinni. Þeir leita eftir samstarfshóp 10 ungmenna á aldrinum 13-25 ára - Skoða nánar

Hópur frá Vichy í miðju Frakklandi leitar eftir samstarfsaðilum í þríþjóða ungmennaskipti sem eiga að fara fram í júlí/ágúst 2010, en hópurinn er þegar í samstarfi við hóp frá Rúmeníu. Leitað er eftir hóp 8-12 ungmenna á aldrinum 15-17ára og gætu þemu verkefnisins verið tengd, tónlist, sirkús listum, íþróttum eða menningu - Skoða nánar 

Hópur ungra drengja frá Frakklandi leitar eftir samstarfsaðilum til að búa til verkefni með þeim sem á að fara fram í Júlí 2010. Verkefnið á að vera í snúast um umhverfismál með tengingu við tónlist. Um er að ræða að mestu atvinnulaus ungmenni og eru þeir á aldrinum 18-23 ára - Skoða nánar 

Miðstöð ungs fólks í Lednice í Tékklandi leitar eftir samstarfsaðilum fyrir 25. janúar. Þema verkefnisins eru hefðbundin ævintýr og þjóðsögur og er markmiðið að skoða hvað er sammerkt með ævintýrum og þjóðsögnum í mismunandi löndum og hvernig þau er ólík - Skoða nánar Hópurinn vill fá sent Partner Promoter hluta umsóknar í síðasta lagi 25.janúar.  

Ungmennaþjónusta Fontenay-sous-bois hverfisins í París í Frakklandi leitar eftir samstarfshóp til að sækja um ungmennaskipti 1. apríl 2010. Hópurinn er opinn fyrir bæði tvíþjóða og fjölþjóða ungmennaskiptum og er ætlast til að hver hópur samanstandi af 8-10 ungmennum á aldrinum 14-17 ára. Áhugamál hópsins sem hægt væri að mynda verkefni um eru fjölbreytt t.d. kvikmyndun, fréttamennska, rökræður o.fl. - Skoða nánar 

Centre Social Soleil Saint Blaise í París í Frakklandi óskar eftir samstarfsaðilum. Um er að ræða hverfamiðstöð í einu af hverfum Parísar. Miðstöðin vill senda hóp 12 ungmenna á aldrinum 13-18 ára í ungmennaskipti með ljósmynda þema - Skoða nánar

Ungmennaráð Flokks fólksins (Peoples's party) í Lettlandi óskar eftir samstarfshópum. Áætlað er að 6 lönd taki þátt í ungmennaskiptunum sem myndu fara fram í Lettlandi í maí eða júní. Ætlast er til að þátttakendur séu á aldrinum 15-20 ára - Skoða nánar

Hópurinn Roko frá Lettlandi leitar eftir samstarfsaðilum á aldrinum 18-25 ára. Verkefnið mun snúast um ferðamannaiðnað í Svíþjóð og stefnt er að fjölþjóðlegu ungmennaskiptaverkefni - Skoða nánar  

Hópur frá listaskóla í Tékklandi óskar eftir samstarsaðilum í verkefnið "Music and folklore are connceting us V." Hópurinn leitar eftir hóp 12 ungmenna á aldrinum 15-21 ára. Hópurinn hefur tekið þátt í 5 ungmennaskiptum áður og því öllum hnútum kunnugur. Hópurinn leitar helst efitr samstarfi við tónlistarfólk - Skoða nánar 

Hópurinn The Youth Association for Culture and Education Hope of Ramnic frá Rúmeníu leitar eftir samstarfsaðilum fyrir verkefnið "Cultural Heritage - International Passport". Hópurinn vill taka á móti hóp 5 ungmenna á aldrinum 18-25 (ásamt 1 hópstjóra) í Rúmeníu í júlí 2010 - skoða nánar

Hópurinn The Youth Association for Culture and Education Hope of Ramnic frá Rúmeníu leitar eftir samstarfsaðilum fyrir verkefnið "Beyond humour into discrimination". Hópurinn vill taka á móti hóp 5 ungmenna á aldrinum 18-25 (ásamt 1 hópstjóra) í Rúmeníu í byrjun ágúst 2010 - skoða nánar

 

Leiklistarhópur frá Ítalíu er að leita sér að samstarsaðilum. Hópurinn virðist mjög metnaðarfulllur og með góða reynslu af starfi innan Youth in Action (Evrópu unga fólksins). Hann leitar eftir hóp 4 ungmenna ásamt 1 heimstjóra - Skoða nánar

 

Kolding Youth School í Danmörku óskar eftir samstarfi við hópa til að vinna með sér verkefnið Environment in action í júlí 2010. Hópurinn þarf að samanstanda af 10 ungmennum á aldrinum 14-17 ára og tveimur hópstjórum - Skoða nánar

 

Hópur frá Belgíu óskar eftir samstarfsaðila. Hópurinn er frá samtökum sem svipa til skátanna og heita Chiro en þau eru meðal stærstu ungmennasamtaka Belgíu. Aldur þátttakenda er 15-16 ára - Skoða nánar

 

Leiklistarhópur frá Belgíu leitar eftir samstarfi við hóp á Íslandi. Hópurinn hefur í hyggju að koma á samstarfi 4 landa sem öll senda 4 fulltrúa ásamt hópstjóra. Aldur þátttakenda er 16-20 ára og mun verkefnið fara fram í byrjun ágúst 2010 - Skoða nánar 

 

Hópur frá strandbænum Fethiye í Tyrklandi óskar eftir samstarfshóp. Verkefnið tengist náttúruvernd, hlýnun jarðar, lífrænum landbúnaði o.s.fr. - Skoða nánar 


Til baka




Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is