Upplýsingar um atvinnu í Evrópu - http://europa.eu/youth/working/index_eu_en.html

Evrópska ungmennagáttin er ætluð ungu fólki sem langar til að vinna í öðru Evrópulandi. Þú ferð beint inn á síðu sem heitir „Working“ og þar fyrir neðan eru fjórir valmöguleikar (Traineeships, Finding a job, Working holidays, Au-pair). Síðan getur þú valið land í Evrópu efst í vinstra dálki og skoðað nánari upplýsingar um vinnu í hverju landi fyrir sig.
Evrópsk vinnumiðlun - http://eures.is/

Kíktu á vefsíðu EURES (EURopean Employment Services). Þar er góð leið til að nálgast upplýsingar um atvinnutækifæri hvarvetna í Evrópu.
Sumarvinna á Norðurlöndum - http://www.nordjobb.net/is

Viltu vinna á Norðurlöndum í að minnsta kosti 1 mánuð á tímabilinu maí til september? Þú þarft að vera búsett(ur) á Norðurlöndunum, tala skandinavískt tungumál (dönsku, norsku eða sænsku) og vera á aldrinum 18 – 28 ára.

Stúdentamiðlun hjálpar íslenskum og erlendum námsmönnum á framhalds- og háskólastigi í leit að starfi, einkum sumar-, hluta- eða tímabundnu starfi.
Störf í boði á Íslandi - http://www.vinnumalastofnun.is/storf-i-bodi/

Vinnumálastofnun heldur skrá yfir laus störf sem í boði eru á landinu öllu. Hér er skrá yfir þau störf sem í boði eru.
Europass - www.europass.is

Europass er stöðluð menntunar- og starfshæfnismappa. Í Europass möppunni eru fimm skjöl sem lýsa mismunandi þáttum í menntun, starfsþjálfun, starfsreynslu, tungumála- og menningarreynslu, auk óformlegri þátta eins og persónulegri hæfni einstaklings. Hægt er að safna eftirfarandi skírteinum í möppuna: Evrópskri ferilskrá, mati og viðurkenningu á starfsmenntun, viðauka við prófskírteini, starfsmenntavegabréfi og tungumálapassa.

Eurodesk European Youth Portal Evrópa unga fólksins