Upplýsingastofa um nám erlendis - http://www.ask.hi.is/page/nam

Hér eru yfirgripsmiklar upplýsingar um nám erlendis. Hægt er að fá aðstoð hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins við leit að námi en best er að byrja að skoða heimasíðuna um nám á eigin vegum.

Hér getur þú leitað eftir upplýsingum um menntun eftir landi. Skoðaðu vel borðann vinstra megin á síðunni - þar velur þú land sem þig langar til að fara til og svo velur þú "að læra". Síðan er hægt að velja að læra, í skóla, í háskóla, fyrir vinnu (atvinnulífið), tungumálanám og óformlegt nám.

Erasmus gerir stúdentum kleift að stunda nám eða starfsnám í öðru þátttökulandi í 3-12 mánuði
Erasmus stúdentasamtök - www.esn.org

Ef þú ert að spá í að fara í nám erlendis og ætlar að fara í Erasmus stúdentaskipti væri sniðugt að tengja sig við Erasmus stúdentasamtök. Þar getur þú komið þér í samband við aðra sem eru í sömu sporum og þú.
Braintrack - www.braintrack.com

Á þessari síðu velur þú heimsálfu og síðan land og þá kemur upp listi yfir háskóla í því landi sem þú hefur valið.
Tungumálaskólar - http://ask.hi.is/id/1416

Á þessari síðu getur þú fundið upplýsingar um tungumálaskóla víða um heim.
AFS nemendaskipti - http://www.afs.is

AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök. Aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi eru nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára.
Europass - www.europass.is

Ef þú ætlar að skrá þig í nám eða starfsþjálfun eða leita þér að vinnu á Evrópusvæðinu þá er Europass ein leið sem getur hjálpað þér að skýra færni þína svo að hún sé auðskilin alls staðar í Evrópu.

Eurodesk European Youth Portal Evrópa unga fólksins