evrovisir-is
 
 

Starfsþjálfun
19.5 2013

Hefur þú áhuga á að fara í starfsþjálfun út í heim?  Kíktu á netsíðurnar hér fyrir neðan.

 


Leonardó
Leonardó styrkir mannaskiptaverkefni sem felur í sér heimsóknir og starfsþjálfun í Evrópu. Mannaskiptaverkefnum er skipt í tvo flokka:
-          Mannaskipti eru fyrir fólk  í starfsnámi, í starfsmenntaskólum, á iðnsamningi sem og fólk á vinnumarkaði. Starfsþjálfunina má taka sem hluta af námi, eftir að námi er lokið eða á meðan á samningi stendur. Markmið verkefnanna er að auka faglega færni og starfsmöguleika ungs fólks hvar sem er í Evrópu, auka þroska, víðsýni, tungumálakunnáttu og menningarskilning.
-          Starfsmannaskipti eru fyrir leiðbeinendur, kennara, fræðslustjóra eða starfsmannastjóra í fyrirtækjum og stofnunum.  Styrkir eru einnig veittir til leiðbeinenda/kennara sem vilja auka tungumálakunnáttu vegna starfs síns.
 

Evrópa unga fólksins

Evrópa unga fólksins veitir styrki til að skipuleggja þjálfun og samstarf þeirra sem starfa með unga fólki. EUF veitir einnig styrki til þátttöku í fjölbreyttum námskeiðum í Evópu sem flest hafa það að markmiði að þjálfa þátttakendur í að nýta sér Evrópustyrki til að skipuleggja fjölþjóðleg samstarfsverkefni á með ungu fólki ásamt því að skapa vettvang til að kynnast öðrum Evrópubúum sem starfa með ungu fólki.

/euf/forsida/thjalfun_og_samstarf/

/euf/forsida/fundir_ungs_folks/


Alþjóðleg stúdentasamtök

AIESEC eru stærstu alþjóðlegu stúdentareknu samtök í heiminum. Þau gefa stúdentum og brautskráðum stúdentum tækifæri á að vinna erlendist í a.m.k. 6 vikur.

http://aiesec.org/iceland


Starfsnám

Upplýsingastofa um nám erlendis hefur tekið saman upplýsingar um starfsnám víða í heiminum.

http://ask.hi.is/id/1386




Evróvísir - Eurodesk· Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík · Sími 551 9300 · Netfang: evrovisir hjá evrovisir.is