Eurodesk Brussels Link - http://www.eurodesk.eu/
Hér eru allar evrópsku styrkjaáætlanirnar sem eru í boði fyrir ungt fólk. Veldu þema og sjáðu hvað er í boði. Einnig er sniðugt að skoða undirsíðuna "Deadline Reminder" sem sýnir þér alla umsóknarfresti í þessum styrkjaáætlunum næstu þrjá mánuði.
Evrópa unga fólksins - euf.is
Evrópa unga fólksins er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action, og er samstarfsverkefni ESB, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ. Áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára og þá sem starfa með ungu fólki. Á hverju ári veitir Evrópa unga fólksins á Íslandi um 1.400.000€ í styrki til góðra verkefna sem skipulögð eru af ungu fólki og/eða fyrir ungt fólk.
Evrópusamvinna - http://www.evropusamvinna.is/
Evrópusamvinna.is er vettvangur til að kynnast tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi. Þar er að finna upplýsingar um allar áætlanir sem Ísland er þátttakandi í innan Evrópusambandisins.
Handbók um styrki - http://www.lme.is/page/styrkirhandbok
Á heimsíðu Upplýsingastofu um nám erlendis hefur verið teking saman handbók um styrki og er þar að finna ýmsa íslenska og erlenda styrktarsjóði til náms og rannsókna erlendis og hér á landi. Athugið að undir "Ísland" eru fjölmargir íslenskir styrktarsjóðir, sem margir nýtast til náms erlendis.
Leonardo - www.leonardo.is
Leonardo áætlunin styður einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun. Jafnframt styður áætlunin við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi og greiðir fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun.
Erasmus - www.erasmus.is
Erasmus, háskólaáætlun Evrópusambandsins, er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu. Áætlunin styrkir ýmis konar verkefni, svo sem stúdenta og kennaraskipti, námsferðir starfsfólks háskóla og fólks í atvinnulífinu, sameiginlegt námskeiðahald, og fleira.



